
Hannyrðaverslunin Erla hóf rekstur árið 1970. Verslunin hefur alltaf lagt áherslu á íslenska handavinnu, svo og séríslensk munstur og myndir. Jafnframt eigum við mikið úrval sérinnflutts varnings.
Í verslun okkar er að finna margar gerðir útsaumsgarns, álnavöru til útsaums og prjóna- og heklugarn í miklu úrvali. Útsaumspakkningar með krossaumi eigum við með bæði áprentaðu og til þess að telja út. Einnig eigum við til harðangur og fleira. Svo og úrval af áprentuðum dúkum, sængurverasettum og puntuhandklæðum.
Verslun okkar að Snorrabraut 38 er opin á virkum dögum kl. 11 - 18
Þegar verslað er í gegnum vefverslun á Erla.is, fer ferlið fram á eftirfarandi hátt:
Vara er valin og sett í körfu. Þegar safnað hefur verið saman í körfu þeim vörum sem ætlunin er að kaupa, er farið í körfuna og smellt á afgreiða pöntun. Viðskiptavinir þurfa þá að fylla út umbeðnar upplýsingar, nafn, kennitölu, heimilisfang, síma, sendingarmáta, greiðslukortanúmer og gildistíma til að geta gengið frá pöntun.
Við gerum okkar besta til þess að afgreiða pantanir og senda vörur til viðskiptavina innan tveggja virkra daga frá pöntun. Ef vara er ekki til á lager munum við hafa samband samdægurs og gefa þér kost á því að bíða uns við getum afgreitt vöruna, breyta pöntun eins og þér hentar, eða draga kaupin til baka.